Mér tókst loks að ljúka við þessa síðu sem ég er búin að vera að dúllast í síðan á laugardaginn. Ég var við það að gefast upp á henni því ég var alltaf svo óánægð með hana. En hún verður bara svona. Ég var að prófa SU pearl ex duftið mitt í fyrsta sinn á síðu. Þetta kemur mjög flott út live en glansinn á bronsinu í titlinum og stimplaða dótinu skilar sér auðvitað ekki í gegnum skannann.
Myndin er af sólar-hnuss-svipunum hans Mikaels á Tenerife. Hann setti upp þennan svip í hvert sinn sem við fórum út í sólina. Hann var ekkert of hrifinn af öllu þessu sólskini og vildi helst vera í skugga. Hann semsagt hnussaði bara yfir þessu öllu saman! ;)
9 ummæli:
Geggjuð flott síða og dúllu hnuss svipur:)
Kv. Bjarney
ahahahah krúttið!! æðisleg mynd og síða!
Krúttinn :D
Flott mynd og frábær síðan :D
Hlakka til að fá að sjá hana LIVE og skoða pearl xið :D
æðisleg síða, finnst svipurinn alveg frábær :)
Geggjuð síða og flott myndin af gaurnum...he he
Hihi...geggjaður svipur :) ...mjög falleg síða hjá þér Magga, þú ert snillingur í að velja saman liti.
geggjuð síða! svo fyndin mynd og skemmtilegur titill.
dúllan frábær mynd.. sídan ad sjálfsogdu glæsileg.. hann er algjor snúlli hahaha
Hún er æði þessi hjá þér...
Skrifa ummæli