fimmtudagur, 15. mars 2007

BOM síða


Þessa síðu gerði ég ekki alls fyrir löngu. Ég er með í BOM verkefni á Skrapplistanum. BOM stendur fyrir Book Of Me og því er ég að skrappa um mig. Það er virkilega skemmtilegt að skrappa um mig svona til tilbreytingar en hingað til hef ég að mestu skrappað um fallegu gaurana mína og jú eina síðu um kisurnar sem við áttum.
Okkur er sett fyrir nokkur verkefni í hverjum mánuði sem við þurfum að skrappa og sýna. Síðan hér er t.d. fæðingarsíðan um mig. Þarna eru myndir af mér nýfæddri og mömmu og pabba svo ungum og sætum...en þau eru nú alltaf sæt! Ég er svo að vonast eftir að mamma hafi tíma til að líta uppúr námsbókunum og skrá fæðingarsöguna mína sem ég ætla að hafa þarna undir myndinni af mér í vöggunni. Ég er alveg þokkalega ánægð með þessa síðu svona ykkur að segja! :D

4 ummæli:

Þórunn sagði...

Mér finnst þessi alveg ótrúlega falleg! Fíla blúnduna og metalskrautið!! Síðan er þessi pappír bara geggjaður! Get bara ekki fengið leið á honum ;-)

Barbara Hafey. sagði...

Ahahaha.a... mwahahhaaaa.... bwahahahaaa... ég get ekki hætt að hlægja.. SKRAPP Í BANKA... EKKI BANKA :D hohohoooo...

Síðan er svo auðvitað glæsileg :D

hannakj sagði...

Geðveikt flott síða!!!! Eins og allar síður sem þú hefur gert.

Svana Valería sagði...

þessi er beauty