
Ok, ég verð að viðurkenna að ég náði ekki að gera 2 í síðustu viku en þessa gerði ég á þriðjudaginn svo að ég er ekkert allt of mikið á eftir áætlun! Ætla svo að skella í 2 í viðbóð í þessari viku. Kannski ég fari bara í það núna á eftir. ;)
En þessi síða er líka í skrappliftileik á SB.com og sú sem gerði frumgerðina heitir Sgoetter og hennar síðu má sjá
hér.
Mín síða er gerð úr Bazzill, pappír frá Creative Imaginations Marquis collection eftir Marah Johnson sem ég fékk hjá Fríðu í Skröppu og mér finnst hann trubbl!!!
Blómin eru prima nærfatasettin og eitthvað stórt blóm, tölur frá FP og fleirum og gaman að segja frá því að þessar litlu tölur voru keyptar í minni allra fyrstu skrappkaupferð fyrir rétt rúmum 2 árum. Jamm, þá keypti ég þessar tölur, munsturskæri, lím og nokkrar pappírsarkir og eitthvað kisuskraut! :D Ekki grunaði mann þá að maður myndi enda með allt þetta magn af skrappdóti í kringum sig!!! Huhumm! ;)
Fiðrildið stóra og þessi litlu sem varla sjást eru líka keypt hjá Fríðu...jamms, ég gramsaði vel í öllum körfunum inni í herberginu hjá henni og fann þessar líka gersemar....eeelska þessi fiðrildi!