laugardagur, 23. febrúar 2008

Magic




Einhverntíma er allt fyrst og í fyrsta sinn notast ég við enskt orð í titli...átti svolítið erfitt með það meira að segja því ég hef verið svo á móti því að nota ensku á síðurnar mínar. En WTF hverjum kemur það svo sem við hvað maður setur á sínar síður og hérna var hugmyndabankinn galtómur...nema þetta orð, "Magic" poppaði alltaf upp í kollinum á mér og áður en ég vissi af var ég búin að líma enskt orð á sínum mína...OMG! :D


Myndin er af Mikael í jólafötunum sínum og photoshoppaði ég ljósið inná og skyggði hana alla í kringum hann.


Munstraði pappírinn er úr BG, scarlet´s letter línunni, blingið er Prima, blómið fann ég hjá Sesselju og mér finnst það cool, svarta blómið er líka Prima.


4 ummæli:

Gauja sagði...

æðisleg síða og magic alveg rétti titillinn þarna ;-)

Svana Valería sagði...

wow krapp og allt það ,þessi er hreint yndislega falleg

Barbara Hafey. sagði...

Eigum við að ræða þetta með ensku orðin eitthvað???
Þú hefðir líka getað skrifað Magic með very fancý hvítum tússi :lol:
hahahahaa... very flott hjá þér pæ :)

Nafnlaus sagði...

Mér finnst þessi síða alveg trufl flott, pottþétt í favorites hjá mér.

GuðrúnE